
Leiðsögunám - námsvísir
Viltu kynnast Íslandi á dýpri hátt og læra að miðla sögu, menningu, náttúru og upplifun landsins til ferðamanna á lifandi og faglegan hátt?

Leiðsögunám Endurmenntunar Háskóla Íslands er fyrir þau sem vilja byggja upp traustan grunn fyrir starf leiðsögumanns og öðlast þekkingu, færni og sjálfstraust til að leiða fjölbreytta hópa um Ísland.
Námið er á háskólastigi og skipulagt í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008 (Tourism services – Requirements for the provision of professional tourist guide training and qualification programmes). Haustið 2025 var gerð ítarleg úttekt á náminu sem staðfesti að það uppfyllir kröfur staðalsins.
Í náminu er fjallað um lykilþætti leiðsagnar: Ísland sem áfangastað, sögu og menningu, náttúru og náttúruvernd, öryggi, samskipti, frásögn og faglega miðlun. Nemendur læra að setja fróðleik í samhengi, velja það sem skiptir máli hverju sinni og miðla því á skýran, áhugaverðan og ábyrgan hátt. Námið er sveigjanlegt og nemendur geta tekið það á eigin hraða þar sem kennsluefni er að miklu leyti tekið upp.
Námið er ætlað einstaklingum sem stefna á að starfa við leiðsögn og vilja tileinka sér þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að skapa ferðamönnum upplýsandi, minnisstæða og skemmtilega upplifun á Íslandi á ábyrgan hátt.
Kennslan byggir á hagnýtri nálgun þar sem nemendur þjálfast í að undirbúa, skipuleggja og leiða ferðir, takast á við fjölbreyttar aðstæður og nýta tækni sem styður við vandaða leiðsögn.
Upplýsingar í námsvísi eru birtar með fyrirvara um breytingar.

