Fara í meginmál

Lest­ur árs­reikn­inga

5 stjörnur

Hvaða boð­skap flytja árs­reikn­ing­ar okkur? Gefa þeir trú­verð­uga mynd af starf­semi við­kom­andi fé­laga?

Ársreikningar félaga koma mikið við sögu í efnahagslífinu og efni þeirra snertir líf margra beint og flestra annarra óbeint.

Á námskeiðinu verða grunnhugtök og forsendur ársreikninga kynnt. Uppbygging ársreiknings útskýrð og samhengið milli einstakra kafla. Lagagrundvöllur sem ársreikningar hvíla á og ábyrgð á innihaldi þeirra verður til umræðu. Tekin verða dæmi úr ársreikningum íslenskra félaga og rýnt í hvað þessir reikningar segja okkur, en jafnframt vakin athygli á því hvað þeir segja okkur ekki. Hvaða stærðir í reikningunum eru matskenndar og þá um leið háðar óvissu. Stefnt er að því að þátttakendur öðlist grunnþekkingu í lestri ársreikninga, þekkingu sem þeir geta síðan byggt á eftir áhuga og þörfum.

Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í ársreikninga.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla þekkingu á eðli ársreikninga en langar að fá innsýn í uppbyggingu þeirra og skilning á hvað þeir segja okkur og hvað þeir segja okkur ekki.

„Þægi­leg yf­ir­ferð og þekk­ing kenn­ara til fyr­ir­mynd­ar."

Fjarnám

21. október – 22. október 2026

6 klst. – 2 skipti

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Dag­skrá

21. október kl. 9:00 – 12:00

22. október kl. 9:00 – 12:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

58.900 kr.

Snemmskráning: 11. október. Almennt verð: 64.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Lestur ársreikninga

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.