Fara í meginmál

Að ferð­ast með lest

5 stjörnur

Á þessu skemmti­lega nám­skeiði er fræðst um lest­ir sem far­ar­máta, sér í lagi í Evr­ópu og hvernig hægt er að kom­ast um á þægi­leg­an hátt, styttri og lengri leið­ir.

Lestarferðalög bjóða upp á þægilegan fararmáta við allra hæfi og stundum með fegursta landslag beint fyrir utan gluggann. Hugurinn fer á flug og hjartað tekur gleðikipp.

Ísland er eitt fárra landa án járnbrautalesta. Á námskeiðinu fræðumst við um þennan fararmáta sem er oft vanmetinn af Íslendingum. Sérstök áhersla er lögð á lestir í Evrópu og hvernig hægt er að komast um á þægilegan hátt, styttri og lengri leiðir. Farið verður í praktíska hluti, hvernig hægt er að skipuleggja og bera sig að á lestarstöðvum. Sérstaklega verður fjallað um undraheim næturlestanna, hvernig þær eru að fá uppreist æru og þá athygli sem þær eiga skilið á tímum kolefnisfótspora.

Skemmtilegt námskeið fyrir öll áhugasöm um ferðalög. Nýtist vel þeim sem hafa litla eða enga reynslu af lestum og þurfa praktísk ráð til að bruna af stað.

„Fræð­andi og mjög gagn­legt nám­skeið, vel skipu­lagt og góð náms­gögn."

Staðnám

29. október – 5. nóvember 2026

4 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

29. október kl. 19:00 – 21:00

5. nóvember kl. 19:00 – 21:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

25.900 kr.

Snemmskráning: 19. október. Almennt verð: 28.500 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Að ferðast með lest

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.