Fara í meginmál

Bak­verk­ir - ráð og óráð

5 stjörnur

Lærðu að greina á milli gagn­legra ráða og óráða þegar kemur að bak­verkj­um!

Á námskeiðinu verður fjallað um þær ótal ráðlegginga sem fólk með bak- og hálsverki fær — ýmist frá læknum, sjúkraþjálfurum, íþróttafræðingum og öðrum fagstéttum, en líka frá ættingjum, vinum, samstarfsfólki og vinnuveitendum. Margar slíkar ráðleggingar reynast gagnslausar og sumar geta jafnvel verið skaðlegar. Við rýnum í hvað stenst og hvað ekki, og greinum vandlega þar á milli.

Einnig verður farið yfir vísindagrunn á sviðinu. Við stiklum á sögulegri þróun bakvandamála, greiningaraðferðum og meðferðum, og setjum þá þekkingu í samhengi við nútímann. Markmiðið er að draga sérstaklega fram það sem er raunverulega nytsamlegt fyrir klíníska framkvæmd og daglegt líf skjólstæðinga.

Talið er að meira en 80% landsmanna fái bakverki eða hálsverki einhvern tíma á lífsleiðinni. Námskeiðið á því erindi til allra, óháð aldri, þjóðerni, trúarbrögðum, kyni, starfi, áhugamálum, pólitískum skoðunum - í stuttu máli - til allra.

„Áhuga­vert efni, frá­bær fyr­ir­les­ari og skemmti­leg fram­setn­ing."

Staðnám

14. október 2026

3 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

14. október kl. 17:00 – 20:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

22.900 kr.

Snemmskráning: 5. október. Almennt verð: 25.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Bakverkir - ráð og óráð

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.