Fara í meginmál

Heyrðu, ha? Að greina og skapa trú­verð­ug sam­töl

Á þessu nám­skeiði verð­ur fjall­að um und­ir­stöðu­at­riði sam­tals­grein­ing­ar og hvernig þau nýt­ast t.d. hand­rits­höf­und­um og þýð­end­um.

Flest skynjum við þegar samtöl í sjónvarpi eru stirð og óraunveruleg, en oft er erfitt að átta sig á hvað veldur. Samtöl geta verið óþarflega formleg, tónfallið á skjön og þýðingin skrýtin. Á þessu námskeiði verður fjallað um undirstöðuatriði samtalsgreiningar (e. Conversation Analysis) og hvernig þau nýtast til að a) fá aukinn skilning á íslensku talmáli og b) skapa trúverðug samtöl í leiknu efni og texta. Samtalsgreining er sú fræðigrein sem hefur rannsakað mest notkun tungumálsins í hversdagslegum samskiptum og hentar því vel til að rýna í talað mál. Hver eru einkenni hversdagslegra samskipta og hvaða gildrur þurfum við að forðast við skrif, þýðingar, leik og talsetningu til að samtöl hljómi eðlileg?

Á námskeiðinu munum við skoða hvernig fólk talar í raun og veru: hvernig við skiptumst á orðum, bregðumst við, hikum, grípum fram í, framkvæmum hluti (beint eða óbeint) og stýrum flæði samtala með orðum á borð við „heyrðu“, „hérna”, „þú veist“, „ha“ og „öhm“. Byggt verður á raunverulegum samtölum á íslensku og ensku og dæmi tekin úr talsettu barnaefni. Markmiðið er að þátttakendur fái nýja sýn á íslenskt talmál og þær ósýnilegu reglur sem móta öll mannleg samskipti. Námskeiðið veitir fræðilegan en aðgengilegan grunn sem þátttakendur geta síðan nýtt í eigin sköpun, við kennslu og greiningu á málnotkun – eða bara í eigin lífi.

Námskeiðið er gagnlegt fyrir handritshöfunda, þýðendur, leikara, kennara og áhugafólk um íslenskt mál.

Staðnám

13. október – 20. október 2026

5 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

13. október kl. 17:00 – 19:30

20. október kl. 17:00 – 19:30

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

28.900 kr.

Snemmskráning: 4. október. Almennt verð: 31.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Heyrðu, ha? Að greina og skapa trúverðug samtöl

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.