Fara í meginmál

Fyr­ir­mynd­ar skjala­stjórn í fram­kvæmd

Taktu skjala­stjórn­ina á næsta stig og lærðu að skapa yf­ir­sýn, bæta skipu­lag, vinna hrað­ar og ör­ugg­ar með rétt­um að­ferð­um.

Þetta hagnýta námskeið veitir þátttakendum skýra og aðgengilega sýn á skjalastjórn og hvernig má nýta hana til að bæta skipulag, auka gagnsæi og styðja við upplýsta ákvarðanatöku í daglegu starfi. Á námskeiðinu er lögð áhersla á raunhæfar aðferðir, verkfæri og dæmi úr starfsemi fyrirtækja og stofnana sem nýtast beint í vinnuumhverfi.

Fyrri tími námskeiðsins byggir á fyrirlestrum og hagnýtum dæmum en seinni tíminn er vinnustofa með umræðum og verkefnavinnu. Lögð er áhersla á virka þátttöku, spurningar og tengingu við eigin starfsemi til að tryggja að efnið nýtist sem best í daglegri vinnu.

Gerð er krafa um að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Námskeiðið er ætlað þeim sem koma að vinnslu eða stjórnun upplýsinga, svo sem starfsfólki á skrifstofum, stjórnendum, verkefnastjórum og þeim sem bera ábyrgð á ferlum, gæðum eða innleiðingu kerfa – bæði í opinberum rekstri og einkageiranum. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.

Staðnám

5. október – 7. október 2026

8 klst. – 2 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

5. október kl. 8:30 – 12:30

7. október kl. 8:30 – 12:30

Kenn­ar­ar

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

72.900 kr.

Snemmskráning: 25. september. Almennt verð: 80.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Fyrirmyndar skjalastjórn í framkvæmd

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.